
Fangelsið er skilgreint sem opið fangelsi en það felur í sér að engar girðingar eða múrar afmarka fangelsið og því þurfa fangar sem vistast þar að hegða sér á ábyrgan hátt og bera virðingu fyrir þeim reglum sem þar gilda. Aðbúnaður í fangelsinu er góður. Á Sogni er unnið eftir sérstaki umhverfisstefnu sem fangar taka virkan þátt í. Gert er ráð fyrir að vista 20 fanga á Sogni. Auk 18 herbergja eru þar viðtalsherbergi, setustofa, eldhús og borðstofa.
Föngum er ætlað að stunda vinnu eða nám og við komu í fangelsið er hverjum og einum gert að skrifa undir samkomulag um vistunina. Fangar sjá sjálfir um eldamennsku, þrif, þvotta og annað er viðkemur almennu húshaldi og er markmiðið m.a. að þjálfa þá í lífsleikni. Þannig er lagður grunnur að því að undirbúa fanga til að koma út í samfélagið að nýju.
Starfsmenn: Við Fangelsið að Sogni starfa samtals 8 fangaverðir undir stjórn Einars Vals Oddssonar, varðstjóra. Forstöðumaður er Margrét Frímannsdóttir.
Alþjóða Sam-Frímúrarahreyfingin á Íslandi gaf fangahjálpinni Vernd á dögunum hálfa milljón króna. Stjórn Verndar þakkar þessa gjöf og mun ákveða hvernig henni verður varið til að efla starfsemi fangahjálparinnar. Alþjóða Sam-Frímúrarahreyfingin barst til Íslands árið 1921 og er mannræktarfélag sem byggir á ýmsum siðum og táknfræði. Hreyfingin heimilar bæði konum og körlum þátttöku og leggur ríka áherslu á jafnrétti. Öllum er heimilt að gerast félagar án tillits til litarháttar, kynþátta eða trúarskoðana. Nánar er hægt að lesa um Alþjóða Sam-Frímúrarahreyfinguna á Íslandi á heimasíðu reglunnar: