Ragna tekin við sem fangelsismálastjóri

Birgir Jónasson sem var settur fangelsismálastjóri og Ragna Bjarnadóttir nýr fangelsismálastjóri.Ragna Bjarnadóttir tók í dag við embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins. Hún er fyrsta konan til að vera skipuð forstjóri Fangelsismálastofnunar. Hún tekur við starfinu af Birgi Jónassyni sem var settur fangelsismálastjóri á seinni hluta árs 2024.

Ragna kemur úr dómsmálaráðuneytinu þar sem hún hefur verið skrifstofustjóri frá 2017. Þar hefur hún meðal annars stýrt málaflokkum á sviði réttarvörslu, fullnustu refsinga, löggæslu, ákæruvalds, aðgerða gegn brotastarfsemi, almannavarna og alþjóðamála.

Ragna lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og meistaragráðu frá Oxford-háskóla 2009, með áherslu á réttarheimspeki og mannréttindi á sviði sakamála. Hún hefur áður starfað sem ákærandi, lögfræðingur hjá Mannréttindadómstóli Evrópu og sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis.

„Það eru áhugaverðir tímar og talsverðar áskoranir fram undan í fangelsismálum á Íslandi. Við erum að fara að byggja nýtt fangelsi sem verður mikil breyting en það eru líka fjölmörg önnur verkefni í gangi, stór og smá. Ég er mjög þakklát fyrir að ráðherra skuli treysta mér fyrir embættinu á þessum tímamótum. Ég hlakka mikið til að kynnast öllu því frábæra fólki sem vinnur að fangelsismálum og leiða stofnunina í gegnum þessar breytingar,“ er haft eftir Rögnu í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.