Fréttir

Vernd

Starfsemi

Áfangaheimilið

Eldhúsið

Húsnefnd

Styrktaraðilar

Tenglar

Starfsmenn

Stjórn Verndar

Verndarblöð

 
HÖNNUNARSAMKEPPNI - FANGELSI Á HÓLMSHEIÐI

January, 2012


FANGELSI Á HÓLMSHEIÐI


Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Innanríkisráðuneytisins býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Fangelsisbyggingin verður með 56 fangarýmum og u.þ.b. 3.700 m² að stærð. 


Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 30. janúar 2012 en því síðara 26. mars 2012. Skilafrestur tillagna er 16. apríl 2012, fyrir kl. 16:00 hjá Ríkiskaupum.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin fyrri hluta árs 2013 og að framkvæmdir hefjist vorið 2013 og þeim verði lokið vorið 2015. 

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES-svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is  útboðsnúmer 15152, en til að nálgast ítargögn verður að ...


>> full

Sent af: Fréttastjóri

January 06, 2012 11:00

:: General :: ::

Jóla og áramótkveðja

December, 2011


Jóla og áramótakveðja
 
 Stjórn og starfsfólk Verndar sendir landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári með þökk fyrir samstarf og samskipti á árinu sem er að líða.



Sent af: Fréttastjóri

December 22, 2011 8:06

:: General :: ::

Fagleg sjónarmið um byggingu fangelsis

October, 2011


Fagleg sjónarmið um byggingu fangelsis
 
 
Á liðnum misserum hefur mikið verið fjallað um byggingu nýs fangelsis á opinberum vettvangi. Ekki er hægt að segja annað en að byggingasaga fangelsa sé sorgleg. Oft hefur staðið til að byggja fangelsi en einhverra hluta vegna hefur aldrei lánast að klára verkefnið.

Margt kemur til. Þensla í opinberum framkvæmdum, niðurskurður í opinberum framkvæmdum, „byggðapólitík" og almennt áhugaleysi um málaflokkinn. Nú er svo komið að tekin hefur verið ákvörðun um byggingu nýs fangelsis. Því ber að fagna. Því miður hefur nú komið upp „hefðbundin" byggðapólitík, deilur um staðsetningu og útúrsnúningar á alla bóga.

Umræðan hefur farið í marga hringi, rangar fullyrðingar settar fram, stjórnmálamenn sem áður hafa lítið eða ekki tjáð sig um málaflokkinn tekið að skrifa greinar og dregið ályktanir sem eru í engu samhengi við raunveruleikann. Þeir sem koma að ákvarðanatöku um staðsetningu fangelsis hafa jafnvel verið sakaðir um ...


>> full

Sent af: Fréttastjóri

October 05, 2011 0:00

:: General :: ::

Guðmundur Gíslason skrifar um fangelsismál

July, 2011


Guðmundur Gíslason skrifar:
 
Að gefnu tilefni langar mig til að leggja orð í belg vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um byggingu nýs fangelsis en sú staða virðist komin upp að útboð getur ekki hafist vegna ágreinings í ríkisstjórn um fjármögnun verksins.

Miklar breytingar hafa orðið í samfélaginu, lögregla hefur verið efld, tollgæsla styrkst, refsingar hafa þyngst og dómstólar orðið skilvirkari. Fangelsismálastofnun á orðið erfitt með að sinna lögbundnu hlutverki sínu, fullnustu refsingar brotamanna sem dæmdir hafa verið til refsivistar. Í landinu eru sex fangelsi, þar af tvö á höfuðborgarsvæðinu, sem bæði hafa verið rekin á undanþágu heilbrigðisyfirvalda til margra ára enda svo komið að þar er erfitt að uppfylla nútímaskilyrði um mannúðlega refsivist fanga. Hegningarhúsið var byggt 1874 og getur hýst 16 fanga. Kópavogsfangelsið var tekið í notkun 1989 og getur hýst 12 fanga. Það er eina fangelsið fyrir konur. Af ýmsum ástæðum eru bæði þessi fangelsi óhæf undir þá starfsemi sem ...

>> full

Sent af: Fréttastjóri

July 26, 2011 14:00

:: General :: ::

Er það óeining ráðherra sem kemur í veg fyrir byggingu fangelsis


Óeinging
 
Skynsamlegt væri að leita til einkaaðila um fjármögnun og byggingu nýs húsnæðis fyrir fangelsi á Hólmsheiði, ef farið yrði af stað með þá framkvæmd bráðlega, eins og staðan er í ríkisfjármálum í dag, að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Þetta sagði hann í morgunútvarpi Rásar 2 á föstudaginn.
Í fréttaskýringu um fangelsismálin í Morgunblaðinu í dag segir, að þetta stangist á við það sem Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og flokksbróðir Steingríms, hefur sagt um fangelsið, en í aprílbyrjun vísaði hann fréttum þess efnis á bug og sagði ekki stefnt að öðru en opinberri framkvæmd.
Strax þá hermdu heimildir Morgunblaðsins að ágreiningur væri um málið milli ráðuneyta þeirra Steingríms og Ögmundar. Útboðsgögn hafa nú verið tilbúin í marga mánuði og beðið hefur verið eftir útboðinu.
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir aðspurður að mikið hagræði yrði að nýju og stóru fangelsi en segir það ekki sitt hlutverk að hafa skoðun á ...

>> full

Sent af: Fréttastjóri

July 25, 2011 13:00

:: General :: ::


[1] 2 3 4 5 6 ...  [NEXT]  [LAST]
1 - 5 of 70

Fréttastjóri* 








Vernd, Laugateigur 19, 105 Reykjavík, Sími 562 3003 - Bréfsími 562 3004 - Vernd@vernd.is